Sagan mín
Áður en ég skildi sjálfan mig
Ég byrjaði í upplýsingatækni átján ára og hef unnið í faginu í meira en tuttugu ár. Ég lauk B.Sc. í tölvunarfræði samhliða fullri vinnu. Seinna stofnaði ég fyrirtæki og stýrði því, var tæknistjóri og vann að nýsköpunarverkefnum sem fengu styrki og góða dóma. Utan frá leit þetta vel út. Ég gat sökkt mér í verkefni tímunum saman án þess að stoppa.
Það sem sást ekki var hvað það kostaði. Ég lærði snemma að best væri að láta eins og ekkert væri að: gera það sem var erfitt og fela það sem ég þurfti. Mér datt ekki í hug að ég mætti þurfa eitthvað sjálfur. Í dag veit ég að þetta heitir gríma, og að rannsóknir tengja hana við örmögnun hjá einhverfu fullorðnu fólki (Arnold o.fl. 2023).
Ég notaði líka áfengi í mörg ár til að komast í gegnum félagslegar aðstæður. Ég hélt það væri áfengi sem væri vandinn. Í sumar hætti ég að mestu, og þá sá ég betur hvað það hafði verið að deyfa.
Kulnunin sem kom aftur
Kulnunin byrjaði fyrir þremur árum og hefur aldrei horfið alveg. Fjórir kulnunartoppar hafa komið síðan: einn fyrir tveimur árum, tveir í fyrra og einn í ár. Í einum þeirra fór svefninn niður í um fjórar klukkustundir á nóttu og allt féll samtímis. Sá versti kom í haust. Þá hafði ég aðgengi að aðeins 5–10% af hugrænni getu, og einn daginn taldi ég um tíu lokanir: þegar heilinn slekkur á sér og ég get hvorki talað né brugðist við.
Samt hélt ég áfram að smíða. Frá því sumarið í fyrra hef ég byggt hugbúnaðarvettvanginn á bak við Vegvísi einn. Það sýnir virkni, ekki heilsu. Það er myndin af manni sem getur mikið en kann ekki að stoppa. Að harka þetta af sér skilar ekki árangri, heldur viðheldur vítahringnum.
Líkaminn sendir mér líka óskýr boð. Ég tek ekki alltaf eftir svengd, þorsta eða þreytu fyrr en seint. Ég var um 43 ára þegar ég áttaði mig á að það sem ég fann stundum hét kvíði. Hljóð kosta mig meira en áður, og ég fer stundum með heyrnartól á veitingastað. Ekkert af þessu er dramatískt að sjá. Það gerir það ekki léttara.
Greiningin um fertugt
Ég var um 42 ára þegar ég fékk ADHD-greiningu, og í sama mati var einhverfa nefnd. Ég lýsi mér í dag sem AuDHD: hvort tveggja saman. Hvorugt var nýtt. Það hafði bara aldrei haft nafn.
Það sem breyttist var ekki ég heldur skilningurinn. Allt í einu var munstur þar sem áður var bara sektarkennd: af hverju ég gat lesið heila bók en ekki hringt eitt símtal, af hverju hávaði og skipti milli verka tæmdu mig, af hverju hvíld ein dugði ekki. Árin sem fóru í að skilja þetta ekki koma ekki aftur. En ég get hætt að kenna sjálfum mér um.
Þegar kerfin sáu eitthvað annað
Fyrir þremur árum fór ég til heimilislæknis, sem staðfesti heilsubrest og vísaði mér áfram. Endurhæfingin sem fylgdi rann út án þess að getan kæmi aftur, og stuðningurinn stöðvaðist einmitt þegar ég þurfti hann mest. Síðar fór ég í sex vikna endurhæfingu á heilbrigðisstofnun. Hún gaf mér hvíld, en kulnunin var enn til staðar.
Kerfin sem áttu að hjálpa gerðu ráð fyrir að ég gæti hringt, mætt og útskýrt mig, einmitt þegar ég gat það ekki. Ég missti af hjálp af því að ég gat ekki svarað óvæntu símtali.
Í þrjú ár hef ég haldið öllum boltum á lofti í kerfinu: eyðublöð, fundir, frestir og símtöl, hvert á eftir öðru, bara til að fá að eiga tilvistarrétt í mínu eigin landi. Það er full vinna, og ég þurfti að vinna hana í kulnun.
Síðustu þrír mánuðir
Síðustu þrír mánuðir hafa verið þeir erfiðustu í lífi mínu. Kulnunin var dýpri en nokkru sinni fyrr, og einmitt þá reyndi ég að útskýra fyrir fólkinu mínu hvað einhverfa og ADHD eru og hvað var að gerast hjá mér. Því betur sem ég reyndi að sýna hver ég er, því verr gekk okkur að ná saman. Fólkið í kringum mig sneri sér gegn mér, einmitt þegar ég þurfti mest á því að halda. Frá mínum sjónarhóli var hrunið lesið sem geðveiki, þegar það sem ég þurfti var ró og næði. Ég lenti í kreppu og kerfin brugðust ekki við eins og þau áttu að.
Ég veit að einhverft hrun getur litið út eins og eitthvað allt annað utan frá. Svo ég segi það skýrt: Ég var ekki að missa vitið. Ég var einhverfur í kulnun.
Þekking sem sjálfsvörn
Ég byrjaði ekki að lesa af forvitni. Ég byrjaði að lesa til að verja mig. Bæði netið mitt og kerfin hafa valdið mér töluverðum skaða, og þegar þau lásu mig rangt hafði ég ekkert annað en þekkinguna. Svo ég aflaði mér hennar. Ég er fjölfræðingur að eðlisfari, og í fjórða hruninu eignaðist ég nýtt áhugamál: geðvísindi, taugafræði, næringarfræði og samþykki, bæði sjálfs mín og umhverfisins. Ég las rannsóknir um einhverfa kulnun, grímu, innskynjun og ranggreiningu. Smám saman fór ég að sjá sjálfan mig í því sem ég las, og ég lærði hraðar en ég gat útskýrt það fyrir öðrum. Ég hef séð einkennin allt í kringum mig og í mínu nánasta umhverfi.
Óumbeðin hjálp getur valdið skaða. Þegar ég var verst staddur, eftir þrjá sólarhringa nánast án svefns, leitaði ég skjóls á skrifstofunni minni til að fá hvíld og frið. Fólk sem vildi vel, en þekkti ekki einhverfa kulnun, las það sem eitthvað annað. Það kom til tals að svipta mig sjálfræði, og það endaði með ósköpum: ég þurfti að verja mig, í algjöru lætiástandi, gegn þeim sem voru kallaðir til að hjálpa. Ég náði ekki að festa svefn aftur fyrr en tæpum sólarhring síðar, og batinn fór tvo mánuði aftur á byrjunarreit. Ekkert af því hefði þurft að gerast ef einhver á staðnum hefði vitað hvað hann var að horfa á. Það sem er lesið rangt ▸
Ég lærði að einhverf kulnun er ekki bara vinnutengd þreyta, heldur langvarandi örmögnun, færnimissir og minna þol fyrir áreiti, og að kröfur um meiri virkni geta gert hana verri. Ég lærði að orkan er ekki ein hrúga heldur nokkrar skúffur, og ein getur verið tóm þótt hinar séu fullar. Og ég lærði að leiðrétta sjálfan mig: tvö skjöl sem ég hafði skrifað sögðu eitthvað sem heimildin segir ekki. Síðan ber hver fullyrðing í Vegvísi heimild, og stundum stendur þar að við vitum þetta illa.
Enginn ætti að þurfa að verða sérfræðingur í sjálfum sér til að verjast þeim sem áttu að hjálpa. Vegvísir er sú þekking, tilbúin, fyrir þau sem hafa ekki orku til að afla hennar sjálf.
Það sem hjálpaði
Lausnin fyrir mig er ekki að reyna að vera minna ég, heldur meira ég. Í reynd voru það smáir hlutir sem ég gat haldið í:
- skriflegt frekar en símtal, og ein spurning í einu;
- eitt verk á dag þegar orkan er lítil, og hvíld fyrir og eftir fundi;
- morgunn án skjáa og dempað ljós á kvöldin, prófað eitt í einu og án þess að telja daga;
- að skrá hvað var í umhverfinu, hvað gerðist og hve lengi, í stað þess að spyrja mig hvernig mér liði;
- og fólk sem skildi án þess að ég þyrfti fyrst að útskýra allt.
Þegar allt var sem verst fann ég traust hjá fólki sem hafði sjálft reynslu af svipuðu. Þar þurfti ég ekki að verja mig.
Af hverju ég smíðaði Vegvísi
Ég var að afla mér upplýsinga, og þær urðu að þekkingu. Um leið sá ég hversu lítil þekking var í raun til um þetta. Í hverju skrefi síðustu mánuði lenti ég í því hlutverki að veita þekkingu, einmitt þar sem ég kom til að leita hennar. Þá varð ljóst hversu víðtækt vandamálið er sem ég hef gengið í gegnum. Þetta er ekki bara mín saga. Að lokum varð þekkingin að leið fram á við. Þaðan kemur nafnið.
Ég smíðaði Vegvísi af því að ég vildi að þessi leið hefði verið til fyrr, og að enginn þyrfti að finna hana upp á eigin spýtur í miðri kulnun. Ég sá hvernig bilið á milli þess sem ég skildi og þess sem aðrir gátu skilið breikkaði. Vegvísir á að minnka það bil: gefa þér orð yfir það sem þú þarft, á þínum hraða, og gefa fólkinu þínu leið til að skilja.
Allt sem þú skrifar er vistað hjá þér og engu er deilt nema þú veljir það. Vegvísir segir „Þú sagðir:“ en aldrei „þú ert“. Orðin eru þín.
Og ef það er eitt sem ég vildi að einhver hefði sagt við mig fyrr, þá er það þetta:
Þú varst alltaf nóg. Aldrei minna.
Í minningu vinar
Vegvísir er gerður í minningu vinar sem ég missti, og tileinkaður minni allra kærustu.
Þetta er fyrir hann. Fyrir vini mína og ykkar. Fyrir þau sem höfðu það af, og þau sem gerðu það ekki. Fyrir þau sem voru „of mikið, eða ekki nóg“. Og fyrir þau sem enn þrauka.
„Stoltinu skal skilað til vina minna og þinna sem höfðu það af. Til þeirra sem gerðu það gott þrátt fyrir brattar brautir og þeirra sem það gerðu ekki.“
„Stoltinu skal skila til þeirra fjölmörgu sem enn þrauka“
Krafti og sköpun þeirra sem við fáum ekki að sjá.
Gert af ást til þeirra sem mér þykir kærast um.
Til þeirra fjölmörgu sem þurftu að þola meira en þau réðu við.
Til þeirra sem það er ekki um of seint.
Í þágu okkar allra.
— Davíð
Ef þetta snertir þig: Hjálparsími Rauða krossins 1717 · 1717.is, opið allan sólarhringinn.