Articles · Davíð · Lesa á íslensku
ÁföllArticle · 3 min read
Skömminni skilað
Um stoltið sem á heima hjá þeim sem þraukuðu, og skömmina sem á heima annars staðar.
This article has no English version yet. The Icelandic original is shown below.
Það eina sem enginn ætti að vera stoltur af er biðin og þjáningin hjá þeim sem fá ekki vitneskju, og samfélagið sem í fáfræði sinni kastar skömminni á ungt fólk sem ber þær byrðar alla ævi.
Stoltinu ætti að skila.
Ætli sé ekki best að byrja á byrjuninni, á níundu öld, þegar eitthvert oflætisfólk anaði út á ballarhaf vegna einhvers helvítis yfirlætis og almennra vandræða með að fylgja reglum.
Bættu svo við 1.200 árum af vosbúð og harðindum, og því að flest erum við skyld innan átta ættliða. Væri þá ekki nær að spyrja hvaða fjölskylda ætti, tölfræðilega, ekki að eiga einhvern með þau einkenni sem kennd eru við taugafjölbreytileika, sem svo oft er afgreiddur sem firra?
Hvort sem þessi hugleiðing heldur vatni innan ramma vísindanna eða ekki, þá hef ég horft á eftir fleira yndislegu fólki en ég kæri mig um. Fólki sem mætti miklu meira mótlæti en þeir sem dæma börnin ónytjunga í stað þess að hampa þeim.
Börnin sem sum hver verða amman sem hætti að vinna og fór að faðma beljuna. Eða sonur hennar Gunnu, sem var svo efnilegur, og enginn skilur hvernig endaði í ræsinu.
Og hvað um hin hundrað sem allir þegja um, fólkið með fíknivanda sem deyr hér úr ofskömmtun á hverju ári? Þau áttu líklega aldrei séns hvort sem er. En strákurinn var með þetta, hann hefði bara þurft að bíta fastar á jaxlinn, hysja upp um sig og harka af sér.
Þegar það rennur upp fyrir þér:
Fokk! Þetta á við mig!!
Hjá flestum kemur það aldrei. Það er löngu búið að afskrifa þau. Þau náðu aldrei að hysja sig upp úr tossabekknum og standast viðmið meðalmannsins, eftir að hafa verið látin sitja annað ár í 2F, og höfðu aldrei dugnaðinn eða agann. Enda allir löngu búnir að fá nóg af bullinu í agaleysingjanum.
Eitt veit ég þó með vissu: átta ára Davíð hefði strax þá haft gríðarlegt gagn af því að hafa upplýsingarnar um sjálfan sig með sér út í lífið. Börnin okkar sem eru svona hafa að meðaltali fengið 20.000 fleiri skammir en hin, á jafnmörgum árum. Fyrir hvaða sakir?
Fimmtán ára Davíð hefði að sama skapi haft töluvert gagn af þeim. Og 25 ára, verðandi faðir, þrítugur, fertugur … 45 ára: þakklátur fyrir að hafa loks svörin, en afskaplega dapur yfir því sem sá yngri þurfti að harka og hrista af sér. Og það sem plagaði hann lengst: af hverju hann komst í gegn en ekki hinir, sem auðvelt var að sjá sjálfan sig í, og kraftinn og hæfileikana.
Þar til þú ekki heldur!
Stoltinu skal skilað til þeirra fjölmörgu sem enn þrauka og fá ekki áheyrn. Til móðurinnar sem var við það að falla af því að hún fékk ekki lyfin. Hún hafði verið edrú í tíu ár, en henni var samt ekki með nokkru móti treyst fyrir lyfjum.
Stoltinu skal skilað til vina minna og þinna sem höfðu það af. Til þeirra sem gerðu það gott þrátt fyrir brattar brautir, og þeirra sem gerðu það ekki.
Krafti og sköpun þeirra sem við fáum aldrei að sjá. Þeim sem voru of mikið, eða ekki nóg, eða bara ekki eins og ég eða þú, heldur örlítið öðruvísi og illa séð. Þeim sem báru skömmina sem hér er rætt um, skömm sem þau áttu ekki skilið.
Skömmina og allar sakir megið þið hin bera, þið sem í fáfræði ykkar brjótið og níðið mig og mína!
— Davíð
About the numbers
„Hin hundrað“ er tala höfundar. Opinbera talan er lægri: Embætti landlæknis skráði 56 lyfjatengd andlát á Íslandi árið 2023, þar af 34 vegna ópíóíða. Aðrar afleiðingar fíknar eru ekki taldar þar með. Embætti landlæknis: Lyfjatengd andlát á Íslandi árið 2023
Talan 20.000 um skammir sem börn með ADHD fá umfram önnur er oft nefnd, en við höfum ekki fundið hana í birtri rannsókn. Hún stendur hér sem orð höfundar, ekki sem mæling.
This text is part of why Vegvísir came to be. My story · More articles